Undri Iðnaðarhreinsilögur
Undri iðnaðarhreinsilögur er hreinsiefni sem nota má til allrar almennrar notkunar bæði til sjós og lands. Hann er kröftugt hreinsiefni sem virkar vel á olíu, fitu og tjöru. Hann er í senn olíueyðir og þvottaefni. Blandast eins og þurfa þykir hverju sinni. Lítið blandaður skilur Undri eftir bónhúð. Flest efni sem notuð hafa verið í vélarúmum skipa og til hreinsunar á olíuefnum hafa að mestum hluta verið gerð úr olíu, svo sem whitespritti, steinolíu, terpentínu og skildum efnum. Sápur hafa einnig verið notaðar til þessara þarfa, og innihalda þær oft mikið magn af sóda og hafa hátt sýrustig, þannig að þær geta verið skaðlegar mönnum og valdið tæringu á málmum. Þetta nýja hreinsiefni hefur hvorki skaðleg áhrif á menn, málma né vistkerfið yfirleitt. Engar eiturgufur eru af þessu efni og því er það ekki ofnæmisvaldandi. Ekki er nægilegt að efnið sé óskaðlegt, það þarf einnig að hafa notagildi, ekki síður en gömlu efnin. Það má segja að í þessu tilviki hafi vel tiltekist.

Leiðbeiningar: Undri er vistvænn:
Undri henta vel fyrir verkstæði, matvælavinnslur o.fl.

Undri iðnaðarhreinsilögur er til þrifa á gólfum, borðum, veggjum og vélarhlutum.
Undri inniheldur engin leysiefni og má nota án loftræstingar. 

°Efnið má nota óblandað eða blandað. 
°Úðið efninu á flötinn eða dreifið með kústi eða svampi. 
°Gott er að láta efnið vinna í nokkrar mín. 
Blöndun: 
Vélahlutar og verkfæri: 1:3 - 1:10 
Matvælavinnslur: 1:20 - 1:5 
Gólfþvottur:1:5 - 1:50 
UNDRI er framleiddur úr innlendum mör, sem er vannýtt aukaafurð. 
UNDRI er auðniðurbrjótanlegur í náttúrunni og stenst lífniðurbrotsmælingu 301 B (OECD). 
UNDRI er örþeyta sem inniheldur tólgarprópýlester (unnin úr tólg) blandað ethoxýlatsápu og og vatni. 
UNDRI inniheldur ekki komplexbindandi efni sem geta verið skaðleg fyrir náttúruna. 
Sápuefnin í UNDRI eru sterk og ber að varast að láta efnið liggja á húð. 
Iðnaðarhreinsilögur er íslenskur og vistvænn. 
Sýrustig ph7.7 og veldur því ekki útfellingum á áli eða stáli. Undra má nota blandaðan á alla fleti sem þola vatn.

Innihaldslýsing Tólgprópýonat, vatn, alkóhóletoxýlat, própanól, þráavara- og ilmefni


Iðnaðarhreinsilögurinn er fáanleg í eftirfarandi umbúðum:

Umbúðir

Einingaverð án vsk

Lítraverð

Strikamerki
 miða
Strikamerki umbúða
eins lítra brúsar í kassa          . .
fimm lítra brúsar í kassa       . .
20 lítra brúsi með umbúðum       . .  
200 lítra tunna með umbúðum       . .  
1000 lítra tankur