|
Bílasápa
og bón
Tjöruhreinsirinn hreinsar ekki bara tjöruna af bílnum heldur gefur
hann einnig gljáa og verndar lakkið. Hægt að viðhalda gljáanum með því
að þvo bílinn reglulega með UNDRA.
Bílaáklæði og gólfteppi
Nota má tjöruhreinsirinn til að ná koppafeiti-og olíublettum úr áklæðum
og gólfteppum bíla. Öruggast er að prófa efnið fyrst á lítið áberandi
stað til að athuga hvort áklæðið eða teppið lætur lit, af því að
sápuefnin í Undri eru sterk.
Gegnumbleytið blettinn með efninu, látið bíða í 5 mín. og strjúkið
síðan sápuna vel úr með svampi eða klút.
Flugur, Trjákvoða og Harpix
Nota má tjöruhreinsi til að fjarlægja flugur og trjákvoðu af bílum og tjaldvögnum.
Úðið tjöruhreinsinum á flötinn sem hreinsa skal og látið liggja í
ca. 10 mín. Skolið svo af með vatni.
Þrífa upp vélar og vélarhluti
Tjöruhreinsirinn hefur verið notaður mikið í vélarrúmum skipa.
Hann hentar einstaklega vel á göngupallana.
Sót
Undri tjöruhreinsir vinnur vel á sóti og því góður til að þvo
öskubakka sem tjaran er föst í. Blandið efnið til helminga með
vatni.
Látið öskubakkann ofan í blönduna. Látið liggja í 5-10 mín .
Ef þú ert með tillögu um aðra
notkunarmöguleika á vörunni, endilega sendu okkur línu. Þú
getur notað þetta form eða bara sent okkur póst á tjoruhreinsir@undri.com.
|