| UNDRI ER ÍSLENSKUR OG VISTVÆN TJÖRUHREINSIR, HREINSAR TJÖRU OLÍU, FITU, SALT OG ÖNNUR ÓHREININDI. SKILUR EFTIR BÓNHÚÐ OG VERNDAR LAKKIÐ.
Innihaldslýsing Tólgprópýonat, vatn, alkóhóletoxýlat, própanól, þráavara- og ilmefni
|
UNDRI er framleiddur úr innlendum mör, sem er vannýtt aukaafurð.
UNDRI er auðniðurbrjótanlegur í náttúrunni og stenst lífniðurbrotsmælingu 301 B (OECD).
UNDRI er örþeyta sem inniheldur tólgarprópýlester (unnin úr tólg) blandað ethoxýlatsápu og og vatni.
UNDRI inniheldur ekki komplexbindandi efni sem geta verið skaðleg fyrir náttúruna.
|
Undri tjöruhreinsir er ætlaður til að hreinsa tjöru og önnur óhreinindi af bifreiðum, vélum og tækjum.
° Efnið má nota óblandað eða blandað
° Úðið efninu á flötinn eða dreifið með kústi eða svampi.
° Gott er að láta efnið vinna í 2-5 mín.
° Best er að byrja þvottinn neðst til að nýta virkni efnisins sem best.
Athugið að við hitastig yfir 24°C getur efnið skilið sig, hristist þá fyrir notkun. |