| Undri Kvoðuhreinsir er öflugt,
háfreyðandi kvoðuhreinsiefni fyrir matvælaiðnað. Undri
Kvoðuhreinsir veldur ekki tæringu á áli eða stáli né mattar
málningar. Leysir vel upp fitu og eggjahvítuefni. Til
notkunar á tæki veggi gólf og er sérstaklega góður til notkunar á
tæki sem þola ekki að vera hreinsuð með hefðbundnum hreinsiefnum
sökum tæringar. Undri er ætlaður til notkunar í kvoðudælur
eða háþrýstidælur en má nota í handþvott þar sem dælum verður
ekki við komið. Undri kvoðuhreinsir inniheldur engan lút og er
með sýrustig (pH) 7.7 og má nota blandaðan á alla fleti sem þola
vatn. |
UNDRI er auðniðurbrjótanlegur í náttúrunni og stenst lífniðurbrotsmælingu 301 B (OECD).
UNDRI inniheldur ekki komplexbindandi efni sem geta verið skaðleg fyrir náttúruna.
Notkun: Úðið lausninni á flötinn með kvoðudælu eða
kvoðukút. Látið liggja á í 15-20 mín. burstið erfið
óhreinindi og skolið með vatni. (Volgt er betra en kalt)
| Blöndun:
Erfið óhreinindi: 1:20
(5%)=0.5 ltr. í 10 ltr. af vatni.
Meðal óhreinindi: 1:35
(3%)=0.3 ltr. í 10 ltr. af vatni.
Léttari óhreinindi: 1:50
(2%)=0.2 ltr. í 10 ltr. af vatni.
Innihaldslýsing:
Rapsolíuprópýonat, alkóhóletoxýlat, cocodimethýlamínoxið,
própanól
|