Fyrirtækið         UNDRI ehf.   S: 421-6574   Stapabraut 3a, 260 Reykjanesbær

 

   

 













 

Umhverfisstefna

UNDRI ehf. ætlar með starfsemi sinni að leitast við að hafa sem minnst umhverfisáhrif. UNDRI ehf. mun aðeins framleiða umhverfisvænar vörur sem brotna hratt niður í náttúrunni. Í vali umbúða ætlar fyrirtækið að leitast við að velja þær umbúðir sem minnst umhverfisáhrif hafa. Fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum skilagjald fyrir vöruumbúðir svo hægt sé að nýta þær aftur. Fyrirtækið mun einnig leitast við að endurnýta umbúðir sem koma frá birgjum þess. Um er að ræða pappa, pappakassa, plast, plastpoka, tunnur, tanka og bretti. Það sem ekki er hægt að nýta innan starfsemi fyrirtækisins mun fyrirtækið skila birgjum svo þeir geti endurnýtt. Við framleiðslu skal leitast við að nota endurnýtanlega orkugjafa. Fyrirtækið reynir eftir fremsta megni að skipta við innlenda framleiðendur svo mengun við flutning á hráefnum haldist í lágmarki.


Um fyrirtækið

Sigurður Hólm Sigurðsson, fyrrverandi skipstjóri, sótti námskeið á haustdögum árið 1997, hjá Markaðs- og atvinnustofnun Reykjanesbæjar, MOA, sem skipulagt var af fræðslusviði Iðntæknistofnunar Íslands og rekið undir nafninu “Hleypt af stokkunum - Viðskiptahugmynd að veruleika”. Í framhaldi af því bauðst honum að kaupa formúlu að vistvænum tjöruhreinsi, sem þróaður var á Iðntæknistofnun Íslands með styrk frá Rannsóknarráði Íslands.  Framleiðsla hófst í tilraunaskyni, í maí 1998, í 60 fermetra leiguhúsnæði, að Grófinni 18, Keflavík. Fyrirtækið S. Hólm ehf var svo formlega stofnað 14. ágúst 1998.  Í byrjun júlí árið 1999, var hafist handa á byggingu nýs iðnaðarhúsnæðis að Stapabraut 3.  Flutt var inn í nýja húsið 21. janúar 2000.  Árið 2004 var fyrirtækisnafninu breytt í UNDRI ehf.                 [ Undrafréttir]


UNDRI Ísland

Opið frá 9:00 til 17:00 alla virka daga. Lokað í hádeginu.        
Sími: 421-6574 
GSM: 821-6574
Fax 421-7574
Sími 2: 421-6575
Staðsetning: Stapabraut 3a,
260 Reykjanesbær
Kt: 570898-2219
Vsk nr: 59248
Netfang: undri@undri.is
Heimasíða: http://www.undri.is

Starfsmenn

Staða Nafn GSM
Framkvæmdarstjóri: Sigurður Hólm Sigurðsson 821-6574
Markaðs-, sölu- og útflutningsmál: Guðjón Hólm Sigurðsson 822-5470
Fjármálastjóri: Eygló Hjálmarsdóttir 846-0654
Sölumaður: Hörður Falsson 891-7774

Dreifingaraðilar

Dreifingaraðili Símanúmer Vefur Vefpóstur Klukkan þar
UNDRI Íslandi (+354) 421 6574 www.undri.is undri@undri.is
UNDRI Færeyjum (+298) 75 80 11 www.undri.fo fo@undri.com
UNDRI Danmörk (+45) 8696 0804 www.undri.dk dk@undri.com