|












|
Guðlaug Bjarnþórsdóttir
Sælir/sæl öll, mig langar að hrósa vörunum ykkur því þær eiga
það svo sannarlega skilið. Vorið 2005 fór ég á sýningu í Laugardalshöll og
keypti til að prófa ræstingar Undra og hreingerningar Undra og hugsaði með
mér maður hefur nú oft keypt köttinn í sekknum og ákvað að láta slag standa
og prófa þessar vöru. En í þetta skipti keypti ég eitthvað sem ég er búin að
nota síðan og henti öllum öðrum hreingerningarvörum út.
Frábærar vörur , góð lykt og sannarlega að standa undir væntingum. Nú er ég
með þetta blandað á spray brúsa og nota þetta á allt, veggi, borð og hvað
sem mér dettur í hug.
Ég er með hund sem teygjir sig stundum upp um alla vegi og þá er bara
spreyjað og strokið með tusku.
Fyrir nokkrum árum síðan lét ég yfirdekkja með ljósu áklæði gamalt antik
sófasett sem er svo sem ekki í frásögu færandi þegar að yndileg ömmustelpan
mín kom í heimsókn og var með kókómjólk og frussaðist yfir ljósa sófasettið
hjá ömmu.
Ég var búin að reyna nokkur blettaefni og mér fannst það bara versna, en svo
kynntist ég blettahreinsir og ákvað að reyna aftur, fór varlega af stað því
verra gat þetta ekki orðið.
Eftir tvær umferðir eru blettirnir horfnir, en ég tek það fram að það eru 5
ár frá því þetta skeði.
Frábært efni og ég hefði ekki trúað því að þetta bæri árangur en það gerðist
:). Nú er ég búin að prófa flísaheinsir á náttúruflísa sem ég er búin að
vera rosalega ósátt við frá því að þær voru setta á hjá mér þar sem mér
fannst ég aldrei fá þennann glans sem ég var að vonast eftir með öllum
þessum efnum sem mátti nota á þessar flísar. Svo ég hugsaði ég með mér að
verri gætu flísarnar ekki verið og ákvað að prófa flísahreinsinn.
Eftir fyrsta skipti löguðust þær helling en ég var ekki allveg sátt ennþá en
nú eftir að ég er búin að nota hann nokkru sinnum er ég farin að sjá þann
árangur sem ég var að vonast eftir, glansandi og fallegar ( frábært
efni ) ennfremur er ég búin að ná blettum ( skít ) í kringum blöndunar á
vaskinum á baðinu hjá mér, setti óblandaðan flísaheinsir og lét liggja og
bustaði síðan. Frábært efni.
Ég er ekki hætt , setti grjótharða pensla í dall nýverið og pennslasápu
yfir, eftir nokkra klukkustundir voru þeir orðnir mjúkir og eins og nýjir.
Og núna í kvöld ákvað ég að gerast djörf og setja flísaheinsir í
bakaraofninn hjá mér ( er búin að prófa ábyggilega 50 teg. af ofnahreinsum )
og er spennt að vita hvernig það gengur en það virðist lofa góðu, ég leyfi
ykkur að frétta hvernig að það gengur.
Maðurinn minn notar alltaf tjöruhreinsirinn og er alsæll.
Þetta eru frábærar vörur í alla staði, góð lykt skemmir þær ekki, þar sem
mér finnst oft að þessar nátturuvænu vörur séu alveg lyktalausar og finnst
mér þessi lykt æði :)
Svo vona ég svo sannarlega að ég eigi eftir að sjá fleiri vörur frá ykkur,
t.d. gluggahreinsir.
Ég er í því að dásama þessar vöru og er stolt af.
Með góðri kveðju og takk fyrir allt og gangi ykkur vel.
Guðlaug Bjarnþórsdóttir
Selfossi
Ef þig langar að segja eitthvað um þessa vöru, endilega sendu okkur línu.
Þú getur notað þetta form eða bara sent okkur póst
á flisahreinsir@undri.com.
|