|












|
UNDRI Flísahreinsir
|
Þegar einstaklingar og fyrirtæki hugsa um val á ræstiefnum þarf
að taka öll ræstiefni með í reikninginn. Ekki bara þau efni sem mest
eru notuð. Því mikill kostnaður liggur í sérvörunum. UNDRI
flísahreinsir er til margs nothæfur. Hann má m.a. nota til þrifa á
baði, sturtuklefum, eldhúsum og í matsölum. Vöruna má nota til
þrifa á allflestum yfirborðsflötum sem þar fyrir finnast, svo sem
flísum, gólfum, áli og stáli. UNDRI Flísahreinsir fjarlægir alla
fitu auðveldlega, þar með talið húð- og matvælafitu. UNDRI
Flísahreinsir skilur eftir sig þunna fituhúð sem gefur gljáa. Þessi
filma auðveldar mjög endurtekinn þvott vegna þess hve hratt hún
gengur í efnasamband við vatn. Frískandi peruilmur er af vörunni og
ilmar því rýmið sem þvegið hefur verið vel. Engar eiturgufur eru af
þessu efni og því er það ekki ofnæmisvaldandi. UNDRI flísahreinsir
er hvorki súr né basískur því sýrustig hans er ph7.7. Af þessum
völdum mattar hann hvorki flísar, ál né stál.
|
UNDRI Flísahreinsir - helstu kostir
-
Ein
vara í stað margra
·Hreinsar, -flísar, -eldavél, -ísskáp, -bað, -vask, -blöndunartæki -klósett,
-ál, -stál og aðra glansandi fleti.
-
Ódýrari
·Fjölnota efni sem fækkar sérvörum.
-
Auðveldar
þrif
·Skilur eftir þunna glanshúð sem auðveldar þrif þegar þvegið
er næst.
-
Mattar
ekki
·Hann er hvorki súr né basískur og skilur eftir glanshúð.
-
Góður
ilmur
·Að loknum þrifum ilmar rýmið af góðum peruilm.
-
Umhverfisvænn:
·Eftir 90 daga hafa gerlar étið UNDRA og er hann þá aftur
kominn í eðlilega hringrás náttúrunnar.
|
|
Verndum náttúruna:
UNDRI inniheldur engin lífræn leysiefni né
komplexbindandi efni sem geta verið skaðleg náttúrunni.
UNDRI er auðniðurbrjótanlegur í náttúrunni og stenst lífniðurbrotsmælingu
301B(OECD) Gerlar éta 90% af UNDRA á 45 dögum.
Eftir 90 daga hafa þeir étið hann allan og er UNDRI þá aftur
kominn í eðlilega hringrás náttúrunnar.
Notkunarleiðbeiningar:
Úðið UNDRA á flötinn sem hreinsa skal. Dreifið með kústi,
bursta eða svampi. Látið efnið vinna í nokkrar mínútur. Kústið ef
þurfa þykir. Að lokum skolið vel af með vatni. Láréttir fletir:
Best að byrja þvott neðst og vinna sig upp. Við þvott á erfiðum
óhreinindum er gott að nota efnið óblandað og leyfa efninu að vinna
lengur. Látið efnið þó ekki þorna.
| Blöndun: |
| UNDRA má nota ýmist blandaðan vatni eða óblandaðan. Virkni
UNDRA eykst eftir því sem blandan er sterkari og tíminn lengri sem hann fær
til að vinna. |
| Flísar og postulín |
1:1 - 1:5 |
| Ál og stál |
1:5 |
| Borð og húsgöng |
1:20 |
| Gólfþvottur |
1:50 |
|
UNDRI Flísahreinsir er fáanlegur
í eftirfarandi umbúðum:
|
Umbúðir |
Einingaverð án vsk |
Lítraverð |
Strikamerki
miða |
Strikamerki umbúða |
| eins lítra brúsar með úðadælu í kassa |
. |
. |
5690452210468 |
25690452210462 |
| fimm lítra brúsar í kassa |
. |
. |
5690452210475 |
55690452210470 |
| 20 lítra brúsi með umbúðum |
. |
. |
5690452210482 |
|
|