|












|
| UNDRI Blettahreinsir
|
|
| UNDRI blettahreinsir er ætlaður til að fjarlægja bletti úr fötum, dúkum og öðru taui, m.a. málningu, smurolíu, koppafeiti, tyggigúmmí, kertavax, trjákvoðu, harpix, banana, ávexti, djús, rauðvín, líkjör, varalit, kaffi, maskara, tómatsósu, meik, lím, óþornað límkítti og sót. UNDRI blettahreinsir vinnur einstaklega vel á allri olíu, fitu og tjöru.
|
|
UNDRI
Blettahreinsir - helstu kostir
-
Einn
blettahreinsir á fjöldann allan af blettum
-
Málning
úr fötum
· Fjarlægir harðnaða vatnsmálningu úr fötum.
· Fjarlægir óþornaða olíumálningu úr fötum.
-
Fitubletturinn
eftir kertavaxið hverfur
· Þekkt aðferð til að fjarlæga kertavax úr taui er að strauja
dagblað ofaná blettinum. En við þessa aðferð verður fitublettur eftir
í tauinu. Það verður enginn fitublettur eftir þegar UNDRI
Blettahreinsir er notaður.
-
Umhverfisvænn:
· Gerlar éta 90% af UNDRA á 45 dögum. Eftir 90 daga
hafa þeir étið hann allan og er UNDRI þá aftur kominn í
eðlilega hringrás náttúrunnar.
|
|
Notkunarleiðbeiningar
Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn sem hreinsa skal, nuddið blettinn og leyfið UNDRA að vinna í nokkrar mínútur. Nuddið og skolið svo blettinn undir volgu rennandi
vatni. Að lokum þvoið flíkina/tauið strax á viðeigandi hátt í þvottavél eða í höndum.
Ath. Best er að reyna UNDRA blettahreinsir fyrst á lítið áberandi stað ef um viðkvæmt tau/flík er að ræða.
Erfiðir blettir
-Lengið tímann sem UNDRI blettahreinsir fær að liggja á. (Láta blettinn ekki þorna)
-Nuddið, skolið svo og setjið UNDRA blettahreinsir aftur á blettinn. Endurtakið þar til bletturinn er horfinn.
Aðferðir við að fjarlæga nokkra algenga bletti úr
taui
-Fita, feiti, olía, koppafeiti, smurolía, varalitur, maskari, trjákvoða, harpix, ávaxtablettir, ávaxtasafi, appelsínur, epli, meik, tyggjó, sultur og bananar
Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn og leyfið honum að vinna í 5 mín. Nuddið vel og skolið svo undir volgu rennandi vatni. Að lokum þvoið í þvottavél.
Kertavax
Brjótið og skafið kertavaxið úr tauinu. Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn sem eftir er, leyfið honum að vinna í 5 mín. Nuddið vel og skolið svo undir volgu rennandi vatni.
Vatnsmálning
Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn. Nuddið blettinn strax og leyfið honum að vinna í 10 mín. Nuddið vel og skolið svo undir volgu rennandi vatni.
Kók, kaffi, rauðvín, tómatsósa og líkjör
Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn og leyfið honum að vinna í 60 mín. Nuddið vel og skolið svo undir rennandi volgu vatni. Að lokum þvoið í þvottavél.
Óþornuð olíumálning
1. Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn. Nuddið og leyfið honum að vinna í 5 mín. Nuddið aftur vel og skolið undir volgu rennandi vatni.
2. Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn. Nuddið og leyfið honum að vinna í 50 mín. Nuddið aftur vel og skolið undir volgu rennandi vatni.
3. Berið UNDRA blettahreinsir á blettinn. Nuddið og leyfið honum að vinna í 10 mín. Nuddið aftur vel og skolið undir volgu rennandi vatni.
Endurtakið lið 3 þar til bletturinn er horfinn.
|
| Undri er vistvænn: |
|
|
UNDRI
er framleiddur úr innlendum mör, sem er vannýtt aukaafurð.
UNDRI er auðniðurbrjótanlegur í náttúrunni
og stenst lífniðurbrotsmælingu 301 B (OECD).
UNDRI er örþeyta sem inniheldur tólgarprópýlester
(unnin úr tólg) blandað ethoxýlatsápu og og vatni.
UNDRI inniheldur ekki komplexbindandi efni
sem geta verið skaðleg fyrir náttúruna. |
|
|
UNDRI Blettahreinsir er fáanlegur í eftirfarandi
umbúðum:
|
Umbúðir
|
Einingaverð án vsk
|
Lítraverð
|
Strikamerki
miða |
Strikamerki umbúða |
| hálfs lítra brúsar í kassa |
. |
.
|
|
|
Smelltu hér til að panta Undra.
|